Elegant Touch Salon Extension Short Stiletto
1.322 kr.
Neglurnar eru þunnar svo þær virka ekki gervilegar og laga sig að náttúrulegu nöglinni. Neglurnar koma í mismunandi lagi og litum svo hver og einn ætti að geta fundið sínar fullkomnu neglur. Salon Extensions neglurnar koma í miðlungslengd í short stiletto lagi með glansandi áferð. Neglurnar eru glærar að lit og henta fullkomlega til að naglalakka eða skreyta að eigin vild.
1 – Hreinsið þína nögl, fjarlægið naglalakk ef það á við. Gott er að pússa létt yfir þína nögl og snyrta naglabönd. Einnig er gott að strjúka yfir þína nögl með naglalakkhreinsi, til að koma í veg fyrir raka og fjarlægja náttúrulega olíu naglarinnar. 2 – Finnið rétta stærð með að máta gervinöglina á þína nögl, án þess að setja lím. 3 – Berið þunnt lag af lími á þína nögl og passið að límið fari ekki á húðina eða í naglaböndin. 4 – Leggið gervinöglina upp að naglaböndunum, passið að líma ekki á naglaböndin. Leggið gervinöglina niður á þína nögl, frá naglaböndum og niður. 5 – Þrýstið gervinöglinni rólega niður og haldið létt við í um 15 sek, eða þar til að límið hefur fest sig.
24 x false nails & Nail Glue. Nail Glue Ingredients: Ethyl Cyanoacrylate, Polymethyl Methacrylate, BHT, BHA.








