Elegant Touch Colour Grapefruit Slice
1.438 kr.
Neglurnar koma í mismunandi lagi og litum svo hver og einn ætti að geta fundið sínar fullkomnu neglur. Gel Finish Grapefruit Slice neglurnar koma í skær appelsínubleikum lit með glans áferð. Neglunar eru stuttar á lengd í squoval lagi.
1 – Hreinsið þína nögl, fjarlægið naglalakk ef það á við. Gott er að pússa létt yfir þína nögl og snyrta naglabönd. Einnig er gott að strjúka yfir þína nögl með naglalakkhreinsi, til að koma í veg fyrir raka og fjarlægja náttúrulega olíu naglarinnar. 2 – Finnið rétta stærð með að máta gervinöglina á þína nögl, án þess að setja lím. 3 – Berið þunnt lag af lími á þína nögl og passið að límið fari ekki á húðina eða í naglaböndin. 4 – Leggið gervinöglina upp að naglaböndunum, passið að líma ekki á naglaböndin. Leggið gervinöglina niður á þína nögl, frá naglaböndum og niður. 5 – Þrýstið gervinöglinni rólega niður og haldið létt við í um 15 sek, eða þar til að límið hefur fest sig.








